Ég heiti Þorbjörg Alma
Ég fæddist á Landspítalanum þann 29. nóvember 2002. Ég var tæpar 15 merkur og 51,5 cm. Ég var með mikið hár og það var næstum alveg svart.
Foreldrar mínir heita Kristín og Cecil og við búum á Seyðisfirði ásamt stóru systur minni henni Guðlaugu Völu og kisunni henni Maju. Ég á einnig tvö fullorðin systkini sem búa í Reykjavík. Þau heita Kristín Haralda og Haraldur Ísleifur.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús þér ég sendi.
Bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesús að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf Jesús, vertu hjá mér.
Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.
Til litlu systur
Litla yndið mitt þú ert
en vertu góð og farðu í fötin
því við viljum ei sjá holdið bert
og gerðu það éttu matinn.
Þú ert voða sæt og fín
og alltaf góða stelpan.
Enda ertu systir mín
sem alltaf þarf að elta.
Þú mátt ekki gera hitt
og ekki þetta heldur.
"Þetta dót er líka mitt".
Nú verður einhver felldur.
Guðlaug Vala, 2004
Benjamín Sölvi
Ólafur Tryggvi
Trausti Marel
Geirlaugur Cecil
Bjarki Sólon
Elísa Maren
Helena Lind og Hanna Lára
Erna Hörn
Birkir Þór
Erna Alexandra
Seyðisfjarðarbörn

